Kitabı oxu: «Nýju föt keisarans»

Nýju föt keisarans
H. C. Andersen
Böðvar Guðmundsson endursagði
Myndskreytingar gerði Þórarinn Leifsson
Bókin heitir „Kejserens nye klæder“ á frummálinu.
© Katrin Agency, 2013
© kápa og myndir: Katrin Agency, 2013
Hönnun kápu: Jentas ehf.
ISBN 978-9979-64-218-3 (epub)
Samningar er varða verk höfundar, þýðingu, kápu og útlit texta og notendarétt á þeim eru í eigu © Katrin Agency.
www.jentas.is
www.isfolkid.is
www.galdrameistarinn.is
JENTAS gefur bókina út á íslensku og dönsku.
Öll réttindi áskilin.
Bók þessa, eða hluta af henni, má ekki afrita með neinum hætti, hvorki með ljósmyndun, prentun, hljóðritun né á annan hátt, án skriflegs leyfis útgefanda.
Bækur eftir H. C. Andersen
Eldfærin
Litla stúlkan með eldspýturnar
Ljóti andarunginn
Nýju fötin keisarans
Næturgalinn
Nýju fötin keisarans
Það var einu sinni keisari. Hann var svo sólginn í skartgripi og ný föt að hann eyddi öllum peningunum sínum í að punta sig. Hann hugsaði ekkert um hermennina sína. Ekki fór hann í leikhús eða að hann færi í ökutúr út í skóg nema ef það væri til að fólk gæti séð nýju fötin hans. Á klukkutímafresti skipti hann um jakka allan daginn. Eins og sagt er um kónga og forseta „hann er á ríkisráðsfundi“ þá var sagt um keisarann: „Hann er í fataskápnum.“

Það var líf og fjör í borginni þar sem hann bjó og þangað kom margt ferðafólk. Dag nokkurn komu þangað tveir svindlarar sem sögðust vera vefarar og þeir fullyrtu að enginn gæti ofið betri fataefni.
Ekki nóg með að litirnir væru óvenju fagrir og mynstrin óvenju skrautleg, fötin sem voru saumuð úr efninu höfðu þann undarlega eiginleika að þau urðu ósýnileg öllum sem voru óhæfir í starfi eða óvenju heimskir.
Pulsuz fraqment bitdi.